Karellen

Það er markmið okkar hér í leikskólanum að börnunum líði sem best í leik og starfi. Til þess að þeim líði vel er nauðsynlegt að klæðnaður þeirra sé þægilegur og uppfylli þær kröfur að barninu sé hlýtt, það sé þurrt og fötin hefti það ekki við leik.

Útiföt þurfa að vera þægileg og helst þannig að barnið geti hjálpað sér sem mest sjálft.
Á Íslandi er allra veðra von þannig að það er nauðsynlegt að hafa föt við hæfi í leikskólanum.
Í leikskóla eru börn að leika sér. Þau föndra, borða að mestu sjálf, þvo sér og leika úti. Í þessum verkefnum geta fötin blotnað eða orðið skítug. Þess vegna er mikilvægt að börnin séu með föt til skiptanna og jafnvel nokkum sinnum yfir daginn.

Hér fyrir neðan má finna lista yfir það sem við í Krakkaborg teljum að nauðsynlegt sé að hafa í leikskólanum. Listinn er tvískiptur, annars vegar útifatnaður og hins vegar auka fatnaður.
Listinn getur þó verði mismunandi eftir börnum og aldri.

Munið að merkja fötin vel.

mikilvægt er að foreldrar fylgist með hvað fer úr aukafötunum og munið eftir að taka blaut/óhrein föt með heim eftir hvern dag.

Einnig er mikilvægt að athuga hvort skór/kuldaskór/vaðstígvél og útigalli/regngalli séu blaut.

1. Útiföt

  • Pollagalli
  • Kuldagalli
  • Hlý peysa
  • Húfa
  • Ullarsokkar
  • 2 -3 pör af vettlingum
  • Kuldaskór yfir vetrartímann
  • Vaðstígvél
  • Léttir skór yfir sumartímann
  • Létt húfa eða buff yfir sumartímann.

2. Aukaföt

  • 2-3 nærbuxur
  • 2-3 nærbolir
  • 2 sokkar/sokkabuxur
  • 1 buxur
  • 1 bolur
  • 1 peysa

© 2016 - 2024 Karellen